SKILMÁLAR

1. gr. Almennt

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Bína ehf. kt. 500222-1310, www.babina.is.

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Bína ehf. gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Bína ehf. samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Ef þú hefur einhverjar ábendingar um vefverslun, biðjum við þig um að senda okkur tölvupóst á netfangið babina@babina.is.

Sért þú undir 16 ára aldri viljum við vekja athygli þína á að nauðsynlegt er að þú og forráðamenn þínir kynnið ykkur skilmála þessa áður en þú skráir þig inn á síðuna.

Bína ehf. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

2. gr. Verð

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Bína ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar eiga sér stað.

3. gr. Vörur til einkanota

Vörurnar í vefverslun Bína ehf. eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Bína ehf. án tilskilinna leyfa. Bína ehf. áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.

4. gr. Nákvæmni upplýsinga

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

5. gr. Greiðsluleiðir

Hægt er að inna greiðslu af hendi með greiðslukorti, Netgíró, Pei eða millifærslu. Bína ehf. er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.

6. gr. Heimsending og ferill pantana

Þegar neytandi verslar í vefverslun Bína ehf. er hægt að velja á milli þess að sækja á fyrirframskilgreinda staði Dropp eða fá pöntunina heimsenda.

Pantanir eru yfirleitt afgreiddar næsta virka dag. Þetta getur tafist eftir álagi á stórum dögum.

Heimsending er einungis í boði innanlands.

Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum er frí heimsending. Annars er greitt samkvæmt gjaldi sem bætist við í greiðsluferli.

7. gr. Skilafrestur

Neytandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í upprunalegu ástandi í óuppteknum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið, hyggist neytandi nýta sér skilarétt sinn. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent neytanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af neytanda. Neytandi er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi.

8. gr. Galli

Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun Bína ehf. er boðið upp á nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Bína ehf., eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Bína ehf. í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.

9. gr. Meðferð persónuupplýsinga

Þegar neytandi verslar vöru(r) í vefverslun Bína ehf. þarf að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar, þ.e. nafn neytanda, heimilisfang, búsetuland, símanúmer og netfang. Með því að stofna aðgang í gegnum vefsíðu Bína ehf., og kaupum á vöru(m) í vefverslun félagsins samþykkir neytandi slíka söfnun persónulegra upplýsinga. Ef neytandi hefur ekki stofnað aðgang í gegnum vefverslunina mun Bína ehf. safna sömu upplýsingum og að framan greinir í þeim tilgangi að hægt sé að klára pöntun á vöru(m) í gegnum vefverslunina.

Þegar neytandi skráir sig á póstlista Bína ehf. fer netfang neytanda á póstlista. Hægt er að afskrá sig af póstlista Bína ehf. með því að smella á vefslóð í tölvupósti sem sendur er á netfang neytanda.

Bína ehf. fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.

Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Upp geta komið tilvik þar sem Bína ehf. þarf á aðstoð þriðja aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að þau fyrirtæki geti veitt Bína ehf., og á endanum neytanda, þjónustu. T.d. þarf Bína ehf. að láta flutningsaðila fá heimilisfang og símanúmer svo að hann geti sent vöru(rnar) heim til neytanda.

Bína ehf. takmarkar persónuupplýsingar sem þriðja aðila er veitt og eru slíkar persónuupplýsingar aðeins veittar í þeim tilgangi að veita neytanda slíka þjónustu. Bína ehf. veitir slíkum þriðju aðilum strangt eftirlit til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.

Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.

Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem neytandi gefur Bína ehf. er í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000, eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að versla í vefversluninni og bæta þjónustu við neytanda.

Með því að nota vefsíðu og vefverslun Bína ehf. veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og viðurkennir vinnslu og skrá Bína ehf. á persónuupplýsingum sínum.

10. gr. Vafrakökur (e. cookies)

"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Bína ehf. notar þessar upplýsingar til að vita hversu oft neytandi heimsækir vefsíðuna, vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.

Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Bína ehf. vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann.

Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kýs að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Bína ehf., þar á meðal verslunarkerfið.

Með því að nota vefverslun Bína ehf. samþykkir neytandi að Bína ehf. safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.

Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Bína ehf. gætu takmarkast við slíkar breytingar.

11. gr. Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000, lákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga
rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt
sér stað.